***Eignin er seld***
Trausti fasteignasala kynnir:Nýuppgerð og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á annari hæð á frábærum stað í fallegu lyftuhúsnæði við Bláhamra 4, 112 Rvk. Íbúðin er einkar falleg og vel skipulögð og skiptist í rúmgóða stofu, fallegt opið eldhús, baðherbergi, rúmgott svefnherbergi, pall, sérgeymslu í kjallara og bílastæði í bílastæðahúsi.
Áætlað fasteignamat 2019 er 31.950.000 kr.Nánari lýsing:Gengið er inn um
sérinngang af svölum og komið inn í flísalagða
forstofu.Úr forstofu er gengið inn í stórt parketlagt rými sem geymir opið
eldhús með nýrri og fallegri eldhúsinnréttingu og flísum á vegg yfir helluborði og vask.
Mjög rúmgóð og falleg
stofa með parketi á gólfi og úr henni er útgengt á stóran
pall. Af pallinum er komið út á stóra verönd sem er sameiginleg notkun 3ja íbúða á annari hæð.
Á vinstri hönd úr forstofu er komið á parketlagðan gang, með góðum fataskápum, sem geymir svefnherbergi og baðherbergi.
Rúmgott og fallegt
svefnherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi flísalagt með sturtuklefa, snyrtilegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg geymsla í kjallara.
Eigninni fylgir
bílastæði í bílastæðahúsi.
Eignin er skráð 101,9 fm. skv. FMR en þar af er sérgeymsla 5,3 fm. og stæði í bílastæðahúsi skráð 25,8 fm.
Einstaklega falleg íbúð en árið 2017 var íbúðin máluð, nýtt parket lagt á með floti undir, nýjar innihurðir, nýtt eldhús sett upp, nýjir skápar í svefnherbergi og tengi fyrir þvottavél inn á baði komið fyrir.
Allar hurðar í húsinu eru breiðar sem auðveldar allt aðgengi.
Stutt í leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Garðar B. Sigurjónsson, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 898-0255 og á [email protected] og Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 og á [email protected]
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.