Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Krummahólar 8, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
48.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
72 m2
48.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1976
Brunabótamat
25.080.000
Fasteignamat
39.900.000

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu bjarta, fallega og vel skipulagða mikið endurnýjaða 2ja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í Krummahólum í Efra-Breiðholti. Nýlega búið að endurnýja eldhús, baðherbergi og öll gólfefni og var það gert 2021.  Nýlega er búið að skipta um lyftu, setja myndavéladyrasíma, nýja póstkassa og setja mótor á hurð í bílageymslu og sprunguviðgera bílageymslu. Nýbúið að skipta um útihurðir. Nýlega búið að skipta um glugga í sameign sem þurfti. Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. 

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkv. HMS 72,5 fm og þar af er stæði í bílageymslu skráð 23,8 fm og geymsla skráð 5 fm.

Nánari lýsing:
Hol
með fatahengi og parket á gólfi.
Stofa og eldhús í rúmgóðu alrými með parket á gólfi og þaðan er glæsilegt útsýni í norð-vestur.
Eldhús er L-laga. Nýlega (2021) endurnýjað allt og einnig öll tæki (bakaraofn, helluborð og háfur). Tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi. Útgengt á norð-vestur svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi er endurnýjað 2021 með sturtuklefa, upphengdu salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérstæði í lokaðri bílageymslu.
Sérgeymsla íbúðar á geymslugangi á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð hússins.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.

Góð eign í grónu hverfi og stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Allar nánar upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]     Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.