Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Dugguvogur 11 íb 401, 104 Reykjavík (Vogar)
75.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
99 m2
75.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
49.650.000
Fasteignamat
78.250.000

Trausti fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýja og glæsilega 4ra herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) með aukinni lofthæð og bílastæði í bílakjallara við Dugguvog 11 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Bílastæði fylgir eigninni og er í rúmgóðum bílakjallara og er innangengt úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Séreignageymsla í kjallara.  Afhending er við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 99,6 fm. og þar af er geymsla 21,6fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.  

Sýnum samdægus, bókið skoðun hjá: Guðbjörgu G. Sveinbjörnsdóttur, lögg. fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfangið [email protected] eða Dönu Gunnarsdóttur, aðstoðarm. fasteignasala í síma 6981879 eða á netfanginu [email protected]


Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús opið við alrými/stofu, 3 svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er út á svalir úr stofu.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins,  Smelltu hér til þess að fara á vefsíðu ÞG-verk

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í s: 899-5949 / [email protected]


Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.


Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv nánari skilalýsingu. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.