*** Eignin er SELD með fyrirvara um fjármögnun ***
Trausti fasteignasala og Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. kynnir glæsilega 2ja hæða íbúð á efstu hæð í Selásnum að Reykás 25. Skipt var um þak og þakglugga 2019. Þvottahús er innan íbúðar. Tvennar svalir. Fallegt útsýni yfir Rauðavatn og stutt í góðar gönguleiðir og útivist í guðsgrænni náttúrunni. Fermetrafjöldi íbúðar er töluvert meiri en gefið er upp því hluti efri hæðar er undir súð. Eigandi skoðar skipti á minni eign í hverfinu. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 123,6fm og er geymsla ekki innfalin í þeirri tölu.Nánari lýsing:Neðri hæð:Forstofa rúmgóð með góðum skáp og flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa mjög rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt út á svalir og þaðan er glæsilegt útsýni yfir Rauðavatn.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir.
Herbergi II rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Eldhús mjög rúmgott með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi.
Þvottahús innaf eldhúsi er rúmgott og nýtist einnig sem geymsla.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkar og sturtuklefi. Flísar á gólfi og á vegg við baðkar og sturtu.
Efri hæð:Sjónvarpshol/stofa rúmgott með parket á gólfi.
Herbergi III rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Herbergi IIII rúmgott með innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Gott geymslurými er á hæðinni undir súð og því ekki inn í fermetratölu íbúðar.Geymsla íbúðar er með glugga í snyrtilegri sameign á 1. hæð.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á 1. hæð.
Mjög snyrtilegur stigagangur.
Eigandi skoðar skipti á minni eign í hverfinu.
Stutt í bæði skóla og leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Jón Bergdal, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected] og Guðbjörg G Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected] Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.