Gistiheimili í góðu einbýlishúsi á tveimur hæðum auk frístandandi bílskúrs við Oddabraut í Þorlákshöfn. Allt húsið er í útleigu og er 9 herbergi í eigninni auk bílskúrs sem einnig er hægt að nýta í útleigu. Húsið hefur fengið gott viðhald og hafa hitalagnir, skólp, rafmagn og vatnslagnir allar verið endurnýjaðar á síðustu árum.
Bókið skoðun hjá Kristjáni í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected] eða hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 293,2fm. og þar af 34fm. frístandandi bílskúrs.Nánar um eignina:Neðri hæð með sérinngangi.Forstofa með flísum á gólfi.
Á hæðinni eru þrennar útleigueiningar, tvennar íbúðir og eitt herbergi. Íbúð I: eldhús með góðri innréttingu, flísar á gólfi. Baðherbergi inn af með sturtu og salerni. Útgengt er út á afgirtan pall úr íbúðinni.
Íbúð II: eldhús með góðri innréttingu, stofa með parketi og nýlegt rúmgott baðherberbergi með baðkari, glugga og flísalagt í hólf og gólf.
Herbergi: með parketi og baðherbergi inn af með sturtu og salerni.
Frystiskápur er á gangi sem er samýtanlegur fyrir íbúa á hæðinni.
Efri hæð með sérinngangi.Nýlegt eldhús á stigapali sem er samnýtt fyrir alla íbúa hæðarinnar, uppþvottavél og nýlegt helluborð.
Fimm herbergi eru á hæðinni og eru þau öll með sérbaðherbergi inn af með sturtuaðstöðu og salerni. Herbergi I: rúmgott herbergi með parket á gólfi og baðherbergi inn af. Útgengt er út á svalir úr herberginu.
Herbergi II: með teppi og baðherbergi inn af.
Herbergi III: með teppi og baðherbergi inn af.
Herbergi IIII: með teppi og baðherbergi inn af.
Herbergi V: með teppi og baðherbergi inn af.
Á gangi er línskápur og sameigninlegur frystiskápur fyrir íbúa hæðarinnar.
Stúdíóíbúð með sérinngangi á hlið hússins.Eldhús með nýlegri innréttingu og flísar á gólfi.
Svefnherbergi með flísum á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, glugga og flísum á gólfi.
BílskúrVar áður nýttur sem matsalur en í dag er einnig hægt að leigja hann út.
Eldhús með iðnaðarofni, gashelluborð, iðnaðareldavél og flísar á gólfi.
Salur með flísum á gólfi.
Baðheberbergi með glugga.
Hluti af bílskúr er nýtt sem
þvottahús fyrir húsið og er með 2 nýlegum þvottavélum og 2 þurrkurum og aðstöðu fyrir lín. Sérinngangur á hlið bílskúrs er inn í þvottahúsið.
Garður hússins er í góðri rækt og er afgirtur heitur pottur, útisturta og grasflötur.
Göngufæri er í verslunarkjarna.
Nánari upplýsingar um eignina veita Kristján Baldursson, hdl. og lögg. fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected] og Aðalsteinn Jón Bergdal, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected] Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.