Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Freyjubrunnur 23, 113 Reykjavík (Grafarholt)
54.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
67 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
38.650.000
Fasteignamat
46.900.000

EIGNIN ER SELD OG SELDIST STRAX EFTIR OPIÐ HÚS.

Björt og rúmgóð 2ja herbergja íbúð í góðu nýlegu 8 íbúða álklæddu lyftuhúsi og sérmerkt bílastæði á bílaplani við Freyjubrunn í Úlfarsárdal. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 67,1fm. og þar af er geymsla 4,7fm.

Nánari lýsing eignar: 

Anddyri rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Eldhús með góðri hvítri HTH innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, gufugleyptir, helluborð og parket á gólfi.  Eldhús er opið við stofu/borðstofu.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á stórar svalir.
Svefnherbergi mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Baðherbergi flísalagt með innangengri sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. 
Sérgeymsla íbúðar er á jarðhæð hússins, birt stærð geymslu er 4,7fm.
Bílastæði á lóð merkt B02 til sérafnota.

Húsið er einangrað og klætt að utan með vandaðri álklæðningu, ál/timbur gluggar. 
Vandaðar HTH innréttingar og AEG tæki. 

Góð staðsetning í suðurhlíð Úlfarsárdals.
Einstakar náttúruperlur eru í göngufæri, Úlfarsárdalur, Úlfarsfell, Reynisvatn o.fl. Fjölmargir göngu- og hjólastígar bjóða uppá fjölbreytta möguleika til útivistar og tengja saman hverfin í nágrenninu.
Dalskóli er staðsettur á fallegum stað neðst í dalnum og er samrekinn leik- og grunnskóli auk frístundaheimilis. Í dalnum er einnig félagssvæði Íþróttarfélagsins Fram.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.