Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Arnarás 19, 210 Garðabær
74.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
97 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
44.700.000
Fasteignamat
62.750.000

Eignin er *** SELD***
Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs og Kristján Baldursson hdl og lgfs kynna Arnarás 19, bjarta, gullfallega og mikið endurnýjaða íbúð á annarri hæð í tveggja hæða, fjögurra íbúða húsi á þessum vinsæla stað í Garðabænum þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin er 97,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands með tvö svefnherbergi og möguleikann á að bæta við þriðja svefnherberginu með lítilli fyrirhöfn. Sérinngangur er inn í íbúðina.
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni í tölvupóstfanginu [email protected]


Nánari lýsing eignar:
Komið er inná flísalagt, rúmgott anddyri.
Þegar komið er inn í íbúðina er stofa og elddhús í alrými til vinstri og herbergjagangur til hægri.
Strax til hægri frá anddyri er rými sem auðvelt er að stúka af með léttum vegg og setja þannig upp þriðja svefnherbergið. Í dag er rýmið nýtt sem skrifstofa. Þar er stór fataskápur. 
Hjónaherbergið er stórt og rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi. Í dag er hjónaherbergið nýtt sem barnaherbergi.
Barnaherbergið er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergið er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólf með stórum sturtuklefa og upphengdu salerni. 
Við hlið baðherbergisins er þvottahús þar sem gott pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. 
Stofan og eldhúsið eru í alrými og er eldhúsið nýlega uppgert á afar smekklegan hátt. Innréttingin er dökk og eru öll tæki nýleg. Inn af eldhúsi er búr/geymsla
Útgengt er út á svalir úr stofunni, en svalagólf var nýlega uppgert. 
Geymsla er í sameign, skráð 2,7 fm. Eigninni fylgir einnig hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Árið 2021 var tréverk, gluggar og þakkantar lagfærðir ásamt því að lamir, læsingar og þéttilistar í opnanlegum fögum var endurnýjað. Þá var húsið sílanborið, sléttir fletir og tréverk málað. Enn fremur var loftræsting hreinsuð og blásari yfirfarinn. Svalagólf voru viðgerð þar sem á þurfti að halda.
Búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla við húsið. 

Hér er gullmoli á ferðinni í besta ástandi þar sem mikið hefur verið lagt í viðhald á síðustu árum. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni í tölvupóstfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.