Rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð en gengið beint inn að framan með rúmgóðum svölum á þessum vinsæla stað í Urriðaholtinu í Garðabæ. Tvenn salerni eru í íbúðinni. Sér þvottahús inn af baðherbergi er innan íbúðar. Húsið er byggt af mjög traustum byggingaraðila MótX ehf. Aldrei hefur verið búið í eigninni og er eignin laus við kaupsamning.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 121fm. og þar af er geymsla 5,2fm.
Nánar um eignina: Forstofugangur með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Gestasnyrting með glugga, innrétting og flísalagt í hólf og gólf.
Stórt opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Axis, eyja, innbyggð uppþvottavél, gufugleypir, tvennir ofnar og parket á gólfi. Borðplata á eyju verður frágengin fyrir afhendingu eignarinnar.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á góðar suðursvalir úr stofunni.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svenherbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting og innangeng sturta.
Þvottahús innaf baðherbergi með innréttingu og flísum á gólf.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins 5,2fm.
Urriðaholt er einstaklega vel staðsett þar sem náttúran umlykur hverfið á þrjá vegu. Frábær útivistarsvæði í göngufæri og barnvæn leiksvæði. Stutt er í úrval verslanna og þjónustu í Kauptúni. Skipulag Urriðaholts hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir gott samspil við náttúruna fyrir þar sem áhersla á lífsgæði er í fyrirrúmi. Frekari upplýsingar um Urriðaholt má finna hér.
Stutt lýsing á Hraungötu 15-17.
Húsið er 15 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt, KRark. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og margar með fallegu útsýni. Frístandandi sér loftræsting fyrir allar íbúðir sem eykur mjög lífsgæði. Sameiginleg bílastæði á lóðinni. Einnig er sameiginleg hjólageymsla.
Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru af gerðinni AEG frá Ormsson. Allir fataskápar og baðinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Axis. Innfelld LED lýsing í loftum. Baðherbergi og þvottahús eru flísalögð með 60x40 cm flísum á gólfi og veggir að hluta upp í loft. Svalahandrið úr gleri.
Í íbúðunum er frístandandi loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar. Kerfið er með varmaendurvinnslu og endurnýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Í því eru vandaðar loftsíur sem sía allt loft sem kemur inn. Ekki á því að vera þörf á að opna glugga í íbúðunum til loftunnar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected] Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.