Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Álalind 20, 201 Kópavogur
56.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
51 m2
56.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
26.550.000
Fasteignamat
46.550.000

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs kynna Álalind 20, afar fallega og bjarta íbúðareign á annarri hæð í nýju fjölbýlishúsi. Íbúðin er eins og ný, allar innréttingar og tæki eru rúmlega ársgömul. Álalind er á besta stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Þessi íbúð hentar afar vel fyrir kaupendur sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á netfanginu [email protected]. Eignin er laus við kaupsamning. 

Nánar lýsing eignar:
Stigagangur með lyftu er teppalagður og snyrtilegur.
Gengið er inn í íbúðina af svölum á annarri hæð, inn á flísalagt anddyri með góðum skápum
Eldhús og stofa eru í alrými, eldhúsið er með vandaðri hvítri VOKE innréttingu, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. 
Við enda gangs er svefnherbergi með parketi á gólfi og stórum og rúmgóðum skápum. Þaðan er útgengt á svalir sem snúa í norður. 
Til hægri á ganginum er baðherbergi með stórum sturtuklefa
Til vinstri er stór skápur þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Í kjallara er geymsluskápur sem fylgir íbúðinni. Þar er líka hjóla- og vagnageymsla.
Næg bílastæði eru á plani við húsið. 

Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.