Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Tryggvagata 13, 101 Reykjavík (Miðbær)
180.000.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
164 m2
180.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2017
Brunabótamat
91.500.000
Fasteignamat
108.700.000

Einstaklega falleg og björt útsýnisíbúð á 5. hæð í hjarta miðborgarinnar. Fallegt útsýni er yfir Reykjavíkurhöfn og göngufjarlægt í í alla þá þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 164,9fm. og þar af er geymsla 1,9fm. 

Eignin skiptist í anddyrisgang, stofu, borðstofu og eldhús í alrými, svefnherbergi með walk-in skáp og baðherbergi, herbergi með walk-in baðherbergi, þvottahús, suðursvölum sem gengið er út á frá svefnherbergi, norðursvölum sem eru útgengt út frá stofunni og geymslu í kjallara. 
Eikarparket er á öllum gólfum að undanskildum votrýmum þar sem eru flísar. Eldhústæki frá AEG og Kludi blöndunartæki. Hiti er í öllum gólfum. Innréttingar frá HTH. [email protected] stýrikerfi fyrir ljós og myndavéladyrasíma. Snertilaust lyklaaðgengi í allar íbúð, sameignarrými og útihurðir.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir  löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]

Eignin er í vönduðu lyftuhúsi sem var byggt 2017, og er eignin öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og milli hæða og íbúða. Aukin lofthæð. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins. Íbúar geta sótt um íbúakort bílastæðasjóðs. 

Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúðir. Einstaklega glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. Dagnotkunar hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla og vagnageymsla í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir  löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]







 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.