Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna glæsilegt raðhús á einni hæð á rólegum og góðum stað miðsvæðis í Garðabæ. Gott viðhald á húsinu. 2020 var smíðaður 130 fm pallur og settur heitur pottur. 2019 var skipt um gler og gluggapósta að framan, gluggapósta að aftan og húsið málað að utan. 2017 var húsið múrviðgert og nýr dúkur settur á bílskúrsþak. 2016 var loftklæðning og lýsing endurnýjuð í sólskála. 2015 var þak endurnýjað, rennur og þakkantur. 2013 var sett ný bílskúrshurð og gert innangengt í bílskúr. 2012 settur hiti í stétt að framan. Einstaklega fallegt útsýni úr stofu, sólskála og af stórum pallinum. Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á [email protected] **** Fáðu frítt verðmat fyrir þína eign ****
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 195,1 fm og bílskúr þar af 24,5 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2024 er 123.900.000 kr.
Nánari lýsing:Anddyri með flísar og góða innbyggða skápa.
Gestasalerni við anddyri með flísum á gólfi.
Hol er rúmgott með parket á gólfi.
Stofa tvöföld, mjög rúmgóð og björt með parket á gólfum.
Sólskáli er mjög rúmgóður og bjartur með gólfsíða glugga og náttúrustein á gólfi. Útgengt á glæsilegan pallinn beint úr sólskálanum.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, tvöfaldur ofn með extra stóru spanhelluborði og rúmgóður borðkrókur. Parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur er rúmgóður með dúk á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum innbyggðum skápum og dúk á gólfi.
Svefnherbergi II rúmgott með dúk á gólfi.
Svefnherbergi III með dúk á gólfi.
Svefnherbergi IIII með dúk á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, upphengt klósett, handklæðaofn og gólfhita. Var endurnýjað 2011.
Þvottahús og
geymsla með extra góðri lofthæð og geymslulofti innaf eldhúsi. Dúkur á gólfi. Innangengt úr þvottahúsi í bílskúr.
Falleg eign sem vert er að skoða. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Hleðslustöð fyrir rafbíl á bílskúr.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected] **** Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign ****Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.