Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Arkarholt 16, 311 Borgarnes
29.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
51 m2
29.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2011
Brunabótamat
28.300.000
Fasteignamat
23.250.000

Trausti fasteignasala kynnir 51,4 fm sumarbústað auk 36 fm geymsluskúrs að Arkarholt 16, 311 Borgarbyggð. Bústaðurinn stendur á 4500 fm leigulóð. Að innan skiptist bústaðurinn þannig að komið er inn í forstofu þar sem á vinstri hönd er lítil geymsla sem notuð er sem þvottahús. Þá er á hægri hönd baðherbergi, nýlega endurnýjað, og síðan tvö svefnherbergi. Eldhús er opið við stofu og þar er nýlega búið að endurnýja innréttingu. Á gólfum er parket nema á baðherbergi eru flísar. Veggir eru panelklæddir. Úr stofu er útgengi á sólpall og þaðan er stigi niður að heitum potti sem er rafmagnspottur, 3ja ára gamall. Af sólpalli er inngangur í rúmgóða geymslu. Geymsluskúrinn er einangraður í veggjum en eftir er að ganga frá einangrun í lofti en búið er að kaupa steinull sem fylgir með. Bústaðurinn er kynntur með nýlegri varmadælu (5 kílóvött) og geymsluskúr er einnig með varmadælu (2,7 kílóvött). Tvöfalt gler er í gluggum. Aluzink er á þaki (6 ára gamalt á bústaðnum og 2 ára á geymsluskúrnum). Hitaþráður er í vatnsinntaki. Gólf í bústaðnum er nýlega einangrað og klætt með 9mm krossvið.

Sumarhúsafélag kr. 20.000 á ári.
Lóðarleiga kr. 110.267 fyrir 2023.

Nánari upplýsingar veita Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali í síma 867-3040 eða í tölvupósti: [email protected] og Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177eða í tölvupósti: [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.