Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Forsalir 1, 201 Kópavogur
76.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
111 m2
76.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2001
Brunabótamat
55.190.000
Fasteignamat
77.850.000

Eignin er ***SELD*** með hefðbundnum fyrirvörum

Trausti fasteignasala, Kristján Baldursson lgfs og Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs kynna í einkasölu Forsali 1 í Kópavogi, fallega þriggja herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi á þessum vinsæla stað í Salahverfinu. Óviðjafnanlegt útsýni er úr íbúðinni yfir Reykjanesið, Snæfellsnesið og borgina. Tvennar svalir eru á íbúðinni, báðar með svalalokun. Þvottahús er innan íbúðar. Bílastæði fylgir í upphituðum bílakjallara. Íbúðin er 111,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands og þar af er geymslan 9,2 fm. Frábær staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin er laus við kaupsamning. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni í tölvupóstfanginu [email protected].

Forsalir 1 eru sjö hæða fjölbýlishús með lyftu staðsett í Salahverfi í Kópavogi. Það eru sjálfvirkir hurðaopnarar á helstu hurðum í sameign hússins. Gott aðgengi er að húsinu og næg bílastæði fyrir gesti á bílaplani við húsið.


Nánari lýsing eignar:
Anddyri er parketlagt með góðum skáp
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar og útsýni úr stofunni er stórfenglegt. Gengið er út á rúmgóðar svalir með svalalokun úr stofunni. Parket á gólfi.
Eldhúsið er með snyrtilegri eldri innréttingu og parketi á gólfi. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með í kaupunum. 
Svefnherbergjagangurinn er parketlagður og eru góðir skápar á honum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa. 
Svefnherbergi I er stórt og rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. Úgengt út á svalir með svalalokun.
Svefnherbergi II er með góðum skápum og parketi á gólfi. 
Þvottahús er innan íbúðar þar sem hægt er að koma fyrir þvottavél og þurrkara og jafnframt nýta sem geymslu.
Stór 9,2 fm geymsla með hillum er í sameign í kjallara.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla
Bílastæði í upphituðum bílakjallara fylgir. 

Hér er falleg eign á ferðinni með mögnuðu útsýni, sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni í tölvupóstfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.