Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Miðtún 18, 460 Tálknafjörður
49.900.000 Kr.
Einbýli / Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
228 m2
49.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1970
Brunabótamat
104.100.000
Fasteignamat
40.750.000

Fallegt og mjög vel staðsett einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr innst í botnlangagötu með einstaklega fallegu útsýni yfir Tálknafjörð.  Húsið var endurnýjað að innan árið 2003.  Í húsinu eru nú fimm svefnherbergi en mögulegt er að bæta við herbergi ef þörf er á. Húsið skiptist í forstofu, gestasalerni, fimm svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, sjónvarpsstofa, borðstofa, setustofa/sólstofa, þvottahús, geymsla og bílskúr.  Eigin er laus við kaupsamning. 
SELJENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 228,6fm. og þar af er innangengur bílskúr 56,4fm. 

Nánari lýsing:

Forstofa með mjög góðu skápaplássi og flísar á gólfi. Útgengt er úr forstofu út í bakgarð, þar sem lítill sólpallur þar sem hægt er að njóta morgunsólar.
Gestasnyrting er inn af forstofu með glugga og flísalagt í hólf og gólf.  
Eldhús mjög rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu með góðu skápaplássi, innbyggð Miele uppþvottavél, Miele gashelluborð, Miele bakaraofn, Miele combiofn og flísar á gólfi. Útgengt er úr borðstofurými út í garð.  
Sjónvarpsstofa með parketi á gólfi. Rýmið býður upp á að hægt sé að útbúa auka herbergi. 
Stofa og borðstofa  með parketi á gólfi, fallegt útsýni. Af stofupalli er gengið niður í sólstofu.
Sólstofa með fallegu útsýni yfir Fjörðinn, kamína og flísar á gólfi. Útgengt er út í garð úr sólskálanum.
Svefnherbergisgangur er flísalagður og hægt er að loka hann af.  
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi II með skáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi III með skáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi IV með skáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi V með parketi á gólfi
Baðherbergi með innangengri sturtu, sérsmíðuð innrétting, upphengt salerni, gluggi og flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús er mjög rúmgott með góðri innréttingu, gott vinnurými, vaskur, tveim gluggum og flísum á gólfi og á gluggavegg. 
Geymsla og sauna  inn af þvottahúsi, geymsla með sérsmíðuðum skápum og flísar á gólfi.

Bílskúr rúmgóður með bílskúrshurðaopnara, heitt og kalt vatn og flísar á gólfi. Rúmgott stimpilsteypt bílaplan er fyrir faman húsið með hitalögn.

Þakið var endurnýjað árið 2008 og klætt með álbáru. Húsið var klætt að hluta að utan með álbáru árið 2020. 
 
Garður í kringum húsið er í góðri rækt. 

Allar nánari uppslýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.