Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Tjarnarbrekka 2, 225 Garðabær
175.000.000 Kr.
Einbýli / Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
332 m2
175.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
164.650.000
Fasteignamat
169.250.000

Trausti fasteignasala og Kristján Baldursson lgfs. kynna Tjarnabrekku 2, 225 Garðabær, sem er 6 herbergja steinsteypt einbýlishús á einni hæð með glæsilegu útsýni. Húsið var byggt árið 2007 og er um að ræða 332 fermetrar eign sem skiptist í 291,4 fermetra íbúðarrými og 40,6 fermetra bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 3 baðherbergi, 4 svefnherbergi, fataherbergi/geymslu, þvottahús og innbyggðan bílskúr. Þá er gólfhiti í öllu húsinu. Eignin stendur á 895 fermetra lóð og er góður pallur sunnan megin við hús.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 332 fm

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús: Ljós eikar innrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa: Er opin með eldhúsi, rúmgóð og björt með flísum á gólfi. 
Baðherbergi I: Með hvítri vask innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. Flísar í hólf og gólf.
Baðherbergi II: Með hvítri vask innréttingu og upphengdu salerni. Flísar á gólfi.
Baðherbergi III: Með hvítri vask innréttingu, upphengdu salerni og baðkari. Flísar í hólf og gólf.
Svefnherbergi I: Rúmgott með flísum á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með flísum á gólfi.
Svefnherbergi III: Rúmgott með flísum á gólfi.
Svefnherbergi IIII: Rúmgott með flísum á gólfi.

Fataherbergi/geymsla: Rúmgott með opnum skápum og góðu geymsluplássi. Hægt að breyta í auka svefnherbergi.
Þvottahús: Stórt og rúmgott þvottahús með miklu skápaplássi, vask og góðu vinnuplássi.
Bílskúr: Góður bílskúr með flísum á gólfi. Innagengt frá íbúð. 

Húsið er staðsett á góðum stað, stutt í náttúru og gönguleiðir og alla helstu verslanir og þjónustu.

Eignin þarfnast viðhalds og er kaupendum er bent á að skoða ástand eigninarinnar vel og helst með fagmanni.
Eignin er á byggingarstigi 4 og hefur því ekki fengið lokaúttekt.

Allar nánar upplýsingar um eignina veitir Kristján Baldursson hdl og lgfs. í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected] eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.