Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Orrahólar 1, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
44.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
53 m2
44.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
26.500.000
Fasteignamat
37.500.000

Eignin er ***SELD*** með hefðbundnum fyrirvörum

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs og Kristján Baldursson lgfs kynna í einkasölu Orrahóla 1 í Hólahverfinu í Breiðholti, huggulega tveggja herbergja íbúð í  kjallara í þriggja hæða fjölbýlishúsi. Íbúðin er 53,7 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Frábær staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Gott aðgengi er að húsinu og næg bílastæði á bílaplani við húsið.Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni í tölvupóstfanginu [email protected].


Nánari lýsing eignar:
Anddyri er flísalagt með góðum skápum
Stofa, borðstofa og eldhús eru í alrými, parket á gólfi.
Eldhúsið er með snyrtilegri eldri innréttingu og parketi á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtu. Tengi fyrir þvottavél. 
Svefnherbergi og rúmgott og með parket á gólfi.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.

Hér er eign á ferðinni sem hentar afar vel til fyrstu íbúðarkaupa, sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni í tölvupóstfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.