Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Hlíðartún 29, 780 Höfn í Hornafirði
67.000.000 Kr.
Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
265 m2
67.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1969
Brunabótamat
94.550.000
Fasteignamat
62.200.000

Trausti fasteignasala kynnir átta herbergja einbýlishús á tveimur hæðum við Hlíðartún, Höfn í Hornafirði.
Húsið stendur innst í litlum og gróðursælum botnlanga.

EIGENDUR SKOÐA SKIPTI

Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 265 fm sem skiptist í efri hæð 133,7 fm og neðri hæð131,3 fm.

**BÓKIÐ SKOÐUN**

Mjög snyrtileg aðkoma er að húsinu. Hellulögð stétt. Gengið upp stiga að húsinu, skjólsæl anddyrisbygging/bislag með yfirbyggðum stigapalli að hluta

Nánar um eignina:

Efri hæð:
Mjög vel skipulögð og björt með einkar fallegu útsýni út um stóra eldhúsglugga.
Stór forstofa með fatahengi/fataslá við vegg með hillu. Hiti í gólfum. Flísar á gólfi.
Rúmgott forstofuherbergi inn af forstofu. 
Stofa og borðstofa í stóru og björtu rými. Útgengt um svalahurð út á góða suðvesturverönd með skjólveggjum. Gegnheilt parket á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu frá 2006. Gott skápa- og vinnupláss. Innbyggður ísskápur og örbylgjuofn. Spanhelluborð, bakaraofn og stálvaskur. Flísar milli efri og neðri skápa. Hiti í gólfum. Korkur á gólfi. 
Lítið búr er inn af eldhúsi með miklu hilluplássi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og skáp. Baðkar, salerni, vaskur og handklæðaofn.Hiti í gólfum. Flísar á vegg og flísalögð sturta. Flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur með tveimur innbyggðum skápum á vegg. Gegnheilt parket á gólfi.
Hjónaherbergi með stórum nýlegum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Herbergi 1 með harðparketi á gólfi
Herbergi 2 með harðparketi á gólfi.
Mjög rúmgott þvottahús með nýlegri og veglegri innréttingu með miklu skápaplássi. Þvottasnúrur í lofti og gott pláss að öllu leyti.
Neðri hæð:
Á neðri hæð hússins er um 70 fm þriggja herbergja íbúð. Íbúðin samanstendur af anddyri, stofu, gangi, rúmgóðu upprunalegu eldhúsi, tveimur svefnherbergjum og baðherbergi með sturtu. Ekki er full lofthæð í íbúðinni.
Á neðri hæð hússins er geymslurými sem nýtist í dag að hluta til sem vinnuaðstaða, einnig með minni lofthæð.
Garðhús/geymsluskúr 12,9 fm að stærð, stendur á lóðinni framan við hús. 
Garðurinn er mjög gróinn og skjólsæll. Gróðurhús er í bakgarði. Verönd við stofu með skjólveggjum og einnig hellulögð verönd framan við húsið. Vönduð útilýsing í skjólveggjum.

Endurbætur og viðhald sem núverandi eigandi hefur farið í:
Árið 2022 var rafmagn endurnýjað. Einnig var skipt um allar innihurðar efri hæðar.
Árið 2020 var skipt um alla glugga efri hæðar í húsinu.
Árið 2019-2020 var þvottahús allt endurnýjað.
Árið 2019 voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Árið 2014 var skipt um frárennsli og dren.
Búið er að drena allan garðinn og skipta um jarðveg.
Ný gólfefni í herbergjum efri hæðar.
Þak hússins hefur verið einangrað.

Athugasemdir sem komu fram við skoðun:
Líða fer að endurbótum á klæðningu hússins.
Ástand þaks er ekki vitað.
Drenlögn stíflaðist út í götubrunn 2022

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína Biard, löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.