Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Desjamýri 2, 270 Mosfellsbær
73.000.000 Kr.
Atvinnuhús / Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
191 m2
73.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
60.700.000
Fasteignamat
61.350.000

Nýlegt iðnaðar- atvinnu eða geymsluhúsnæði með mikillri lofthæð og steyptu millilofti á jaðarlóð við Desjamýri í Mosfellsbæ. Innkeyrsluhurð og inngönguhurð. Salerni er í húsinu. Eignin er laus við kaupsamning. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 191,9fm. og þar af er jarðhæð 126,8 fm. og efri hæð 65,1fm. 

Nánari lýsing: 

Innkeyrslu og inngönguhurð er á bilinu og rafmagnsopnun er á innkeyrsluhurð.
Jarðhæð er 126,8 fm. og  skiptist upp í sal með mikilli lofthæð undir helmingi rýmisins og stórri innkeyrsluhurð. Salerni með vask er á hæðinni.
Efri hæð er 65,1 fm. sem er steypt plata með mikillri burðargetu og þar er gert ráð kaffistofu, skrifstofu og möguleiki á salernis aðstöðu. Möguleiki er á að stækka milliloftið. 
3ja fasa rafmagn er í húsnæðinu.
Húsið er steypt og  steypt bílaplan fyrir framan og aftan húsinu.  Einnig er gott rými er á bak við húsið. Víða heur inngangshurð verið sett á bakhlið hússins. 
Hæð á innkeyrsluhurðum er 4 m. Niðurföll eru í gólfi, vélslípuð og hitalögn í gólfi. Olíu- og fituskilju hefur verið komið fyrir inn í húsinu.

Góð staðsetning og flottur kostur fyrir iðnaðamenn eða jafnvel dótakassa fyrir leikföngin. VSK kvöð er á eigninni sem kaupandi yfirtekur.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]



 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.