Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Elliðabraut 16, 110 Reykjavík (Árbær)
97.900.000 Kr.
Fjölbýli
5 herb.
124 m2
97.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
96.110.000
Fasteignamat
80.700.000

Eignin er ***SELD*** með hefðbundnum fyrirvörum.

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu einstaklega fallega og vandaða fimm herbergja útsýnisíbúð auk bílastæðis í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi byggt 2020 á frábærum stað við Elliðabraut í Norðlingaholti. Þvottahús er innan íbúðar. Húsin eru álklædd og allar íbúðir með sjálfstæðri loftræstingu. Norðlingaholt er eitt eftirsóttasta hverfi borgarinnar í góðri tengingu við náttúruna, verslanir, þjónustu og stofnbrautir.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 124,0 fm. og þar af er geymsla 11,4 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. 


Nánar um eignina:
Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Eldhús með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, eyja með góðu skápaplássi og hægt að sitja við, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn í vinnuhæð og parket á gólfi. Eldhús er opið við stofu. 
Stofa og borðstofa opin og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á yfirbyggðar útsýnissvalir úr stofunni og eldhúsi. Á svölunum er lítil innrétting við einn vegg með góðu skápaplássi. 
Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi II rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi III rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi IV rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Gangur með innbyggðri lýsingu og parketi á gólfi. 
Baðherbergi með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, innangengri sturtu, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús er inn af baðherbergi með innréttingu, vask og flísum á gólfi. 
Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni og er rafmagnstengi fyrir hleðslustöð til staðar.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 11,4 fm. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign
  
Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist, loftgæðum og útsýni.  
Sameignin er rúmgóð og björt. 

Loftgæði-Nýjung
Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr
baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum.
Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar.

Byggingaraðili og aðalverktaki er MótX (www.motx.is). Húsið var byggt árið 2020.

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020 eða á netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.