Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Álfkonuhvarf 43, 203 Kópavogur
76.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
105 m2
76.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
58.060.000
Fasteignamat
75.700.000

Björt og mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð og bílastæði í bílageymslu. Eignin skiptist í 2 svefnherbergi, eldhús, stofu með útgengi á rúmgóðar svalir, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Lagt hefur verið fyrir rafmagnshleðslustöð í stæði í bílakjallara. Dýrahald er leyfilegt í stigaganginum. Falleg eign á góðum stað í Kópavogi, stutt er í leikskóla og grunnskóla.

Eigin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 105,9fm og þar af er geymsla 10,4fm.

Nánari lýsing:
Forstofa
með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypi, flísar á milli skápa og parketi á gólfi.
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgent er út á stórar svalir til suðurs með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari og innangengri sturtu, glugga með opnanlegu fagi, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með skolvask, vinnuborð og flísum á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílastæði í bílakjallara er með hleðslustöð. 
Stigagangur er mjög snyrtilegur og rúmgóður. 
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins. 
Vagna- og hjólageymsla er í sameign.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.