Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Sambyggð 6, 815 Þorlákshöfn
44.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
78 m2
44.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
37.150.000
Fasteignamat
31.350.000

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu einstaklega fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í vel viðhöldnu fjölbýli við Sambyggð 6 í Þorlákshöfn. Eldhús, baðherbergi, innihurðar, gólfefni og gluggar er allt ný endurnýjað. Eldhúsið er í alrými með stofu og borðstofu. Húsið er nýmálað að utan og var þak hússins viðgert fyrir nokkrum árum. Sambyggð er í göngufæri frá verslunum og þjónustu, skólum og leikskólum. Íbúðin er skráð 78,2 fm samkvæmt HMS. Þvottahús/geymsla innan íbúðar. Allar upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu [email protected]. 

Nánari lýsing eignar
Komið er inn á parketlagt anddyri með góðum skápum.
Eldhús er með nýrri rúmgóðri innréttingu og góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir
Baðherbergið er nýuppgert með flísum í hólf og gólf. Upphengt salerni og bað með sturtuaðstöðu. 
Hjónaherbergið er rúmgott og með góðu skápaplássi, parket á gólfi. 
Barnaherbergið er stórt og rúmgott en tvö minni herbergi voru sameinuð í eitt stórt. 
Rúmgott þvottahús og geymsla er innan íbúðar. 

Í Þorlákshöfn er allt í göngufæri og sveitarfélagið Ölfus er annálað fyrir góða þjónustu við íbúa en mikil uppbygging ýmiskonar atvinnu og iðnaðar er í gangi í sveitarfélaginu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða í netfanginu [email protected].
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.