Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Eskilundur 14, 806 Selfoss
32.500.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
58 m2
32.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1977
Brunabótamat
19.170.000
Fasteignamat
22.600.000

Eskilundur 14 - Sumarhús á eignarlóð í Veiðilundi á Þingvöllum. Mjög vel staðsett innst í botnlangagötu. Innbú, tæki og garðhúsgögn fylgir með kaupunum. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 58,2fm. og þar af er kaldur geymsluskúr 7,2fm. á 1955fm. eignarlóð.


Nánar um eignina:
Að innan skiptist húsið í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu.

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp og parket á gólfi. 
Forstofuherbergi með hjónarúmi, skáp og parket á gólfi. 
Alrými er með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er úr stofu út á góðan og skjólsælann sólpall.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, uppþvottavél, ágætum tækjum og ísskáp.
Herbergi rúmgott með parketi á gólfi. 
Baðherbergi er með salerni, sturtuklefa, gluggi, þvottavél og nýleg innréttingu með handlaug.
Varmadæla loft í loft og rafmagnsofnar.
Sumarbústaðurinn stendur á 1955,0 m² eignarlóð. 
Geymsluskúr sem er óeinangraður er á lóðinni alls 7,2fm. 
Komnar eru stoðir fyrir stærri pall sem er við anddyri. 
Allt  innbú nema persónulegir munir fylgir með kaupunum sem og garðhúsgögn. 

Kostnaður við bústaðinn ca:
Sumarhúsafélag kr. 37.500
Fasteignagjöld kr. 14.495 
Rafmagn ca. 4.000kr. en fer eftir notkun.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasala í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.