Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Álftarimi 11, 800 Selfoss
36.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
61 m2
36.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1991
Brunabótamat
29.850.000
Fasteignamat
31.350.000

Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun 

Um er að ræða rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð (efstu hæð) í blokk sem var byggð árið 1991 með steni klæðningu að utan. Nýlegt parket er á íbúðinni og á baðherbergi eru nýlegar flísar. Tengi er fyrir þvottavél inn á baðherbergi íbúðar. Íbúðin er í útleigu með traustum leigjendum. 

Eigin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 61,1fm og þar af er geymsla 6,7fm. 


Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er út á svalir úr stofunni. Á svölum er viðhaldsfrítt pallaefni á gólfi.
Eldhús með nýlegri innrétting, flísar á vegg milli skápa og borðs, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, ofn og parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi snyrtilegt með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Nýlegar flísar eru á gólfi og einnig nýlegar flísar í sturtuklefa.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins. 
Sameiginlegur garður er fyrir alla íbúa hússins. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu [email protected]



 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.