Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Grenimelur 45, 107 Reykjavík (Vesturbær)
169.900.000 Kr.
Hæð / Hæð í tvíbýlishúsi
7 herb.
261 m2
169.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
98.350.000
Fasteignamat
111.700.000

Stór hæð með aukaíbúð og bílskúr á góðum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 150,9 fm efri sérhæð, 29,2 fm sérstæður bílskúr og 81,2 fm íbúð á jarðhæð með sér inngangi.
Húsið var múrviðgert og málað fyrir um tveimur árum. Eignin er upprunaleg og þarfnast endurbóta. Stór garður er umhverfis húsið. Eign með mikla möguleika í rólegri botngötu í Vesturbænum.


SÖLUYFIRLIT HÉR

Forstofa Teppalagður stigi upp á efti hæðinni. Frá forstofu er einnig stigi niður í kjallara.
Hol er rúmgott hol   Gestasalerni inn af holi.
Stofur Tvær stofur, rennihurð á milli. Önnur stofan var áður tvö svefnherbergi. Opið úr aðalstofu inn í borðstofu. Frá borðstofu eru mjög rúmgóðar svalir. Fallegur arinn í stofu.
Eldhús er upprunalegt með upprunalegum tækjum.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Ruslarenna niður í sorpgeymslu.
Svefnherbergisgangur með þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Svalir út frá einu af svefnherbergjunum.

Aukaíbúð í kjallara sem er lítið niðurgrafinn. Sérinngangur. Eldhús, baðherbergi, stofa og svefnherbergi. Íbúðin er 81,2 fm samkvæmt nýrri eignaskiptayfirlýsingu fyrir húsið.

Bílskúr er 28 fm með heitu og köldu vatni.

Flott eign með mikla möguleika á góðum stað í Vestubænum.

Allar nánari upplýsingar veita Auðun Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976 eða á netfanginu [email protected] og  Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected]

















 





 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.