Trausti fasteignasala kynnir bjarta íbúð á tveimur hæðum við Borgarbraut í Borgarbyggð. Góður pallur bakatil við inngang eignar. Stutt í verslanir, sund og íþróttamiðstöð Borgarness.
Aukaíbúð er á neðstu hæð hússins í eigu sama aðila sem einnig er á sölu. Möguleiki er því að kaupa allt húsið. Tilvalið fyrir stóra fjölskyldu eða með útleigumöguleika á neðstu hæð.
https://fasteignir.visir.is/property/656696
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 142,0 fm.
Nánari upplýsingar hjá Sólveigu í síma 869-4879 eða á [email protected] og Kristján í síma 867-3040 eða á [email protected]
Nánar um eignina:
Neðri hæð:Anddyri með flísum á gólfi. Viðarstigi sem gengur upp á efri hæð.
Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt sameiginlegt rými.
Eldhús með eldri kirsjuberjaviðar innréttingu. Helluborð og vifta. Bakaraofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Flísar milli efri og neðri skápa. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Baðherbergi með gluggum á tveimur hliðum. Snyrtileg innrétting. Baðkar með sturtugleri. Tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og baðkari.
Efri hæð:Hjónaherbergi með góðum fataskáp og innbyggðum skáp. Parket á gólfi.
Tvö
barnaherbergi með parketi á gólfi.
Hol sem í dag nýtist sem sjónvarpsherbergi. Innbyggður skápur/geymsla.
Stór og góður
bílskúr sem þarfnast viðhalds. Ný tafla og ofnalagnir. Vatnsinntak er í bílskúr.
Viðhald sem farið hefur verið í undanfarin ár:Árið 2023 var skipt um ofna í stofu og minna barnaherbergi.
Árið 2022 var minna barnaherbergi einangrað og klætt að innan.
Árið 2021 var húsið málað að utan.
Árið 2021 var stétt lögð fyrir framan og pallur smíðaður.
Árið 2019/2020 var húsið múrað og drenað.
Búið að yfirfara ofnakerfi.
Árið 2021 var skipt um stofu glugga sem vísa að Borgarbraut. Skipt var um gler í öðrum stofu gluggum ásamt því að skipt var um ofna sömu megin.
Árið 2021 var skipt um glugga og ofna í hjónaherbergi.
Ný aðalrafmagnstafla fyrir allt húsið er í bílskúr. Ofnalagnir yfirfarðar og skipt um þrýstijafnara.
Búið að leggja þriggja fasa rafmagn í bílskúr (þó ekki búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla)
Árið 2000 voru raflagnir endurnýjaðar að hluta.
Athugasemdir við skoðun:Vatnslagnir eru gamlar.
Gluggi inn á baði við baðkar er kominn á tíma.
Lítill vatnsþrýstingur inn á baði.
Móða í gleri í holi efri hæðar og öðru barnaherbergi.
Kominn tími á hurð og glugga bílskúrs.
Lélegt þakjárn á bílskúr. Lekur inn í slagviðrum. lekaummerki.
Um er að ræða bjarta og fallega eign miðsvæðis í Borgarnesi. Stutt í verslanir og aðra þjónustu.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína Biard löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu [email protected] og Kristján í síma 867-3040 eða á [email protected]Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.