Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Krummahólar seld 8, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
62.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
119 m2
62.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1976
Brunabótamat
42.120.000
Fasteignamat
58.200.000

**** Eignin er SELD með hefðbundnum fyrirvara ****

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í Krummahólum. Nýleg girðing fyrir sérafnotareit. Nýlega er búið að endurnýja baðherbergi, eldhús, gólfefni, ofna, gluggatjöld og fataskápa og var þetta allt gert 2019/2020. Búið að skipta út lekaliðum og setja sér töflu fyrir eldhúsið. Nýlega er búið að skipta um lyftu, setja myndavéladyrasíma, nýja póstkassa og setja mótor á hurð í bílageymslu og sprungviðgera bílageymslu. Nýbúið að skipta um útihurðir. Nýlega búið að skipta um glugga sem þurfti. Sérmerkt stæði í bílageymslunni fylgir eigninni.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 119,7 fm og þar af er geymsla 5,8 fm og stæði í bílageymslu 23,8 fm.

Nánari lýsing:

Anddyri með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er opið í bjart og rúmgott alrými. Nýleg innrétting með ofni í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa í rúmgóðu alrýminu með parket á gólfi. Útgengt á góðan sérafnotareit með palli og garði.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi. Útgengt á sérafnotareitin.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með flísar á gólfi og baðþyljur á vegg. Falleg innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og innangeng sturta. Tengi og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla íbúðar er á geymslugangi á sömu hæð.

Sameiginlegt þvottahús á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla á hæðinni.
Sérmerkt stæði fylgir eigninni í lokuðu bílastæðahúsi.

Góð eign í grónu hverfi og stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Allar nánar upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]     Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.