Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Grandahvarf 4, 203 Kópavogur
94.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
124 m2
94.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
53.600.000
Fasteignamat
80.700.000

Trausti fasteignasala kynnir: Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á 2. hæð (jarðhæð götu megin) með frábæru útsýni yfir Elliðavatn. Eignin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, geymslu, og svalir með góðu útsýni. Falleg náttúra og gott útivistarsvæði í nágrenninu.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.


Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð skv. HMS 124,9 fm og þar af er geymsla skráð 8,4 fm.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum skáp, flísum á gólfi og gólfhiti.
Stofa björt og með parketi á gólfi. Útgengt á flísalagðar suðaustur svalir með frábæru útsýni.
Borðstofa við eldhús með parket á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu og flísum á gólfi. Bakaraofn í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn.
Herbergi I mjög rúmgott með góðum skáp og parketi á gólfi                                    
Herbergi II rúmgott með góðum skáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari og sturtuklefa, handklæðaofni, upphengdu salerni og glugga, Flísar í hólf og gólf og gólfhiti.
Þvottahús innan íbúðar. Flísar á gólfi.

Sérgeymsla í kjallara og hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Eignin er í sex íbúða fjölbýli með sérinngangi, tvær á hverri hæð.
Stutt í bæði leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected] og
Brynja Kristín Gunnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala/nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 691-6066 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.