Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Furugrund , 162 Reykjavík
134.900.000 Kr.
Einbýli / Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
202 m2
134.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
92.650.000
Fasteignamat
95.300.000

Aðalsteinn Jón Bergdal og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallegt og vel skipulagt 4ra til 5 herbergja einbýlishús með stórum, tvöföldum bílskúr sem einnig er með auka studioíbúð og góðri geymslu sem byggð var við sem og einangruðum geymslugáml sem skiptist í 2 geymslur. Einstaklega skemmtileg lóð með frábæru sjávarútsýni, stutt í fjöruna og útsýni yfir borgina. Lóðin stendur örskot fyrir innan Grundarhverfi á Kjalarnesinu. Sveit í borg á 3800 fm landi.  Skemmtilegar gönguleiðir út á nesið eða inn í hverfið.  Golfvöllur í örskotsffjarlægð. Frábær staður fyrir þá sem vilja hafa sitt eigið land til ræktunar matjurta ofl. og einstaklega skemmtilegt að vera með dýr þarna.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Bókið skoðun hjá Önnu í síma 864-1612

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 202,1 fm þar sem húsið er skráð 124,3 fm og bílksúr 77,8 fm en búið er að bæta við síðan sem ekki er skráð.

Nánari lýsing:
Húsið:

Forstofa er rúmgóð með skáp og flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla við hlið forstofu er rúmgóð með flotað gólf og skolvask.
Stofa/borðstofa í góðu rými með parket á gólfi. (hægt að setja léttan vegg og bæta við svefnherbergi). Útgengt á stóran sólarpall með nýlegu timpri og frábært útsýni.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, viftu yfir helluborði, flísar milli skápa og parket á gólfi og góður borðkrókur.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi. Útg. á pall.
Svefnherbrgi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi var nýlega endurnýjað að hluta og er með "walk-in" sturtu, góða innréttingu, flísalagt í hólf og gólf og gluggi.

Bílskúr er mjög stór þar sem búið er að gera góða studioíbúð með öllum .þægindum og sérinngang. Íbúðin er 29 fm. með eldhúshorni, parket á gólfi og sérbaðherbergi með sturtu.
3ja fasa rafmagn í bílskúr og gott geymslupláss, hitaveita, heitt og kalt vatn og skolvaskur. Byggð var við bílskúrinn 18 fm aðskilin geymsla sem einnig er með skolvask með heitu og köldu vatni og hitaveitu.
30 fm gámur, einangraður bæði að innan og utan með tveimur geymslurýmum. Annað er mjög rúmgott en hitt flott 5 fm geymsla.

Skipt var um klæðningu og lagnir endurnýjaðar eða yfirfarnar 2023 á aðal húsi og þak málað 2022 á aðal húsi og bílskúr. Nýlega var skipt um þakkant á aðalhúsi og sett innfelld lýsing.
Allsstaðar eru pallar/verandir milli húsa (alls 3 pallar) sem nýtast allir mjög vel.

Einstakt tækifæri á ferðinni fyrir þá sem vilja upplifa sveit í borg og njóta alls þess besta sem landið hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, á netfanginu [email protected].  Bókið skoðun hjá Önnu í síma 864-1612


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.